Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.12.2017
Ábending frá veðurfræðingi
Litur gulur: 6. desember kl 08.30
Suðaustanlands verður sums staðar bylur og takmarkað skyggni s.s. frá Skaftafelli og að Jökulsárlóni fram eftir morgni en þá rofar mikið til. Hviður 30 - 35 m/s staðbundið í Öræfum fram yfir miðjan dag.
Færð og aðstæður
Það er snjóþekja eða hálka á vegum á Suðurlandi og víða éljagangur. Þæfingsfærð er yfir Reynisfjall við Vík og niður í Reynisfjöru.Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir og víða éljagangur en á Vestfjörðum er víða strekkingsvindur og skafrenningur og hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði, Klettshálsi og Þröskuldum. Vegurinn fyrir Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði er ófær. Eins er ófært norður í Árneshrepp.
Hálka eða hálkublettir eða snjóþekja er á vegum á Norður- og Norðausturlandi og víða éljagangur. Siglufjarðarvegur er ófær eins og er en þar er unnið að hreinsun. Þæfingsfærð og snjókoma er á Hófaskarði.
Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Austurlandi og víða él og skafrenningur á fjallvegum. Snjóþekja er með suðausturströndinni.
Framkvæmdir á Miklubraut
Í dag miðvikudaginn 6.
desember er unnið við að taka niður öryggisgirðingar á
Miklubraut milli Reykjanesbrautar og Grensásvegar. Unnið er frá kl 09.15 og fram eftir degi.
Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.
Breiðafjarðarferjan Baldur
Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.
Hálendisvegir
Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.