Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.12.2017

6.12.2017 8:40

Ábending frá veðurfræðingi

Litur gulur:  6. desember kl 08.30

Suðaustanlands verður sums staðar bylur og takmarkað skyggni s.s. frá Skaftafelli og að Jökulsárlóni fram eftir morgni en þá rofar mikið til. Hviður 30 - 35 m/s staðbundið í Öræfum fram yfir miðjan dag.

Færð og aðstæður

Það er snjóþekja eða hálka á vegum á Suðurlandi og víða éljagangur. Þæfingsfærð er yfir Reynisfjall við Vík og niður í Reynisfjöru.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir og víða éljagangur en á Vestfjörðum er víða strekkingsvindur og skafrenningur og hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Þæfingsfærð  er á  Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi og ófært á Þröskuldum en þar er unnið að hreinsun. Vegurinn fyrir Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði er ófær.  Eins er ófært norður í Árneshrepp. 

Hálka eða hálkublettir eða snjóþekja er á vegum  á Norður- og Norðausturlandi og víða éljagangur. Siglufjarðarvegur er ófær eins og er en þar er unnið að hreinsun. Þæfingsfærð og snjókoma er á Hófaskarði.

Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Austurlandi og víða él og skafrenningur á fjallvegum. Snjóþekja er með suðausturströndinni.

Framkvæmdir á Miklubraut

Í dag miðvikudaginn 6. desember er unnið við að taka niður öryggisgirðingar á Miklubraut milli Reykjanesbrautar og Grensásvegar. Unnið er frá kl 09.15 og fram eftir degi.

Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.