Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.12.2017

6.12.2017 7:26

Ábending frá veðurfræðingi

 Litur gulur

Suðaustanlands verður sums staðar talsverður bylur og takmarkað skyggni s.s. frá Skaftafelli og að Jökulsárlóni frá því seint í nótt og fram eftir morgni að mikið rofar til.  Hviður 30-35 m/s staðbundið í Öræfum fram yfir miðjan dag.    

Færð og aðstæður

Það er snjóþekja eða hálka á vegum á Suðurlandi og víða éljagangur. Þungfært er yfir Reynisfjall við Vík en þar snjóar.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir og víða éljagangur en á Vestfjörðum er víða strekkingsvindur og skafrenningur og hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Þæfingsfærð  er á Kleifaheiði og Steingrímsfjarðarheiði, þungfært á Klettshálsi og ófært á Þröskuldum. Vegurinn fyrir Hrafnseyrarheiði er lokaður.

Hálka eða hálkublettir eða snjóþekja er á vegum  á Norður- og Norðausturlandi og víða éljagangur. Siglufjarðarvegur er ófær eins og er en þar er unnið að hreinsun.

Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Austurlandi og með suðausturströndinni er einnig snjóþekja.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.