Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 6.12.2017

6.12.2017 17:11

Ábendingar frá veðurfræðingi

Litur gulur:  6. desember kl 10:40

Talsvert hefur snjóað í Mýrdal í nótt og í morgun.  Þar rofar til, en um leið hvessir og þá verður fljótt nokkurt kóf og blinda.  Einkum á milli Sólheimasands og Víkur. Síðdegis hvessir líka af norðaustri undir Eyjafjöllum og þar hviður allt að 35 m/s.  Í Öræfum dregur heldur úr vindi, þar er hiti rétt yfir frostmarki og síður skafrenningur.

Færð og aðstæður

Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á vegum á Suður- og Vesturlandi og víða skafrenningur. Hvasst er á Snæfellsnesi.

Það er töluverður éljagangur, strekkingsvindur og skafrenningur á Vestfjörðum og hálka eða snjóþekja á flestum leiðum. Vegurinn fyrir Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði er ófær.  Eins er ófært norður í Árneshrepp. 

Hálka eða hálkublettir eða snjóþekja er á vegum  á Norður- og Norðausturlandi og víða éljagangur og skafrenningur. Dettifossvegur er ófær.

Það er hálka eða snjóþekja á vegum á Austurlandi og víða él og skafrenningur á fjallvegum. Öxi er ófær og þungfært er um Vatnsskarð eystra. Snjóþekja eða hálka er með suðausturströndinni, skafrenningur og sumsstaðar snjókoma.

Framkvæmdir á Miklubraut

Í dag miðvikudaginn 6. desember er unnið við að taka niður öryggisgirðingar á Miklubraut milli Reykjanesbrautar og Grensásvegar. Unnið er frá kl 09.15 og fram eftir degi.

Hraði um vinnusvæðið er lækkaður í 50 km/klst. og eru vegfarendur beðnir að sýna aðgát og virða merkingar.

Breiðafjarðarferjan Baldur

Breiðafjarðarferjan Baldur er í viðgerð og  á meðan er vetrarþjónusta við suðurfirði Vestfjarða lengd til klukkan 20:00.

Hálendisvegir

Vegir á hálendinu eru flestir ófærir enda engin þjónusta á þeim á þessum árstíma. Allur akstur er bannaður á vegi 864 fyrir austan Jökulsá á Fjöllum vegna skemmda á veginum.