Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.9.2018
Malbikun á Vesturlandsvegi
Miðvikudaginn 5. september, verða malbikuð gatnamót Vesturlandsvegar og Grundartangavegar ásamt 800m kafla frá gatnamótunum niður Grundartangaveg. Veginum verður lokað í báðar áttir og allri umferð beint norðan við Akrafjall í átt að Akranesi. Öllum forgangsakstri verður þó hleypt í gegn um vinnusvæðið. Umferð til og frá Grundartanga verður stýrt í gegnum vinnusvæðið. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 22:00.
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.