Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.7.2018

5.7.2018 8:34

Ábendingar frá veðurfræðingi, fimmtudaginn 5. júlí kl. 08:30

Litur: Gulur

Vaxandi lægð fer norður fyrir Austurland í dag. Með henni gerir NV-átt um tíma, sérstaklega NA-lands. Byljótt og hviður 25-30 m/s svo sem í Jökulsárhlíð og sums staðar N-til á Austfjörðum. Frá því síðdegis og fram eftir kvöldi.

Framkvæmdir

Í dag fimmtudaginn 5. júlí er stefnt að því að malbika akreinar á Reykjanesbraut í Kópavogi. Byrjað verður á ytri akrein, frá beygjurampi við Bæjarlind að beygjurampi við Lindir. Næst verður farið í innri akrein, frá vegi við Hnoðraholtsbraut og að beygjurampi við Lindir. Þrengt verður í eina akrein á meðan framkvæmdum stendur og búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 22:00.

Í dag fimmtudag 5. júlí er stefnt að því malbika á Hafnarfjarðarvegur- Kópavogsgjá –Kópavogslækur/ Vífilstaðavegur, en unnið er á einni akrein í einu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan á framkvæmd stendur

Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli 12:00 og 19:00.


Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði

Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti  til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með eitthvað fram júlí. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.

Vegna sérstakra aðstæðna er hlé á framkvæmdum í nokkra daga en næsta áætlaða lokun er aðfaranótt mánudagsins 9. júlí.

Hálendisvegir

Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.