Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.5.2018

5.5.2018 9:41

Færð og aðstæður

Á Suður- og suðvesturlandi er víða snjóþekja, hálka eða hálkublettir.

Á Vesturlandi er víðast hvar hálkublettir á láglendi og hálka á heiðum en snjóþekja á stöku stað.

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er víða á Vestfjörðum. Mokstur stendur yfir á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðum.

Það er mikið til greiðfært á Norður- og Austurlandi. Hálkublettir eru á Öxnadalsheiði og á Mjóafjarðarheiði.

Næturlokanir í Breiðadals- og Botnsheiðargöngum

Vegna viðhaldsvinnu verða Breiðadals- og Botnsheiðargöng, milli Tungudals og Önundarfjarðar, lokuð á nóttunni, frá kl 22.00 til kl 07.00 næstu 3 vikur. Opnað verður á miðnætti í 10 mínútur.  

Fyrsta lokun verður í kvöld, laugardagskvöldið 5.maí.

Athugið lokunin á einungis við um legginn milli Tungudals og Önundarfjarðar, opið verður á milli Tungudals og Súgandafjarðar.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.