Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 5.3.2018

5.3.2018 13:27

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi eru vegir greiðfærir. Hálkublettir eru á Vesturlandi en snjóþekja á Svínadal.

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum á Vestfjörðum og sumstaðar éljagangur og eins er skafrenningur á nokkrum fjallvegum.

Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir og sumstaðar éljagangur eða skafrenningur.

Það er hálka, hálkublettir, snjóþekja eða þæfingur á Norðaustur- og Austurlandi og víða éljagangur. Skafrenningur er nokkuð víða, einkum á fjallvegum.

Á Suðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en sandfok er þar víða.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í sumum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn.   Sjá nánar hér

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.