Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.9.2018
Malbikun - Flúðir
Þriðjudaginn 4. september er stefnt á að malbika báðar akreinar á Langholtsvegi á Flúðum, frá Skeiða- og Hrunamannavegi að Melum. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 09:00 til kl. 00:00.
Framkvæmdir á Reykjanesbraut
Þriðjudaginn 4. september er verið að fræsa hvinrendur frá álverinu í Straumsvík að tvöfölduninni. Hraði er tekinn niður og búast má við lítilsháttar töfum. Búist er við því að framkvæmdirnar verði búnar um hádegisbil.
Framkvæmdir á Kjalarnesi í nótt
Vegna vegavinnu við veðurstöð Vegagerðarinnar á Kjalarnesi verða tafir frá klukkan 00:00 til 04:00, aðfaranótt miðvikudagsins 5 september. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð verður stjórnað handvirkt á vinnusvæði og hraði tekin niður.
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.