Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.7.2018
Framkvæmdir
Í dag Miðvikudaginn, 4. júlí er stefnt að
því að fræsa og malbika vinstri akrein og öxl á Vesturlandsvegi í átt að
Mosfellsbæ, frá hringtorgi við Úlfarfellsveg að hringtorgi við
Korpúlfsstaðaveg. Þrengt verður um eina akrein og búast má við lítilsháttar
umferðartöfum.
Áætlað er að
framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 06:00 til kl. 15:00.
Á miðvikudagskvöld og nótt 4.-5. júlí er stefnt að því að malbika hringtorg á Selfossi við Gaulverjabæjarveg.
Lokunin verður skipt til helminga og
umferðarstýring verður meðan framkvæmdum stendur.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 19:00 til kl. 07:00
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát
við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög
nálægt akstursbrautum.
Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði
Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með eitthvað fram júlí. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.
Vegna sérstakra aðstæðna er hlé á framkvæmdum í nokkra daga en næsta áætlaða lokun er aðfaranótt mánudagsins 9. júlí.
Hálendisvegir
Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.