Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.5.2018

4.5.2018 20:01

Færð og aðstæður

Á Suður- og suðvesturlandi er víða greiðfært á láglendi. Krapi er á Hellisheiði og á Mosfellsheiði. Þæfingsfærð er á Bláfjallavegi og Nesjavallaleið er ófær.

Á Vesturlandi eru víða hálkublettir á láglendi. Hálka er á Holtavörðuheiði og snjóþekja á Laxárdalsheiði.

Hálka eða hálkublettir ásamt éljagangi eru víða á láglendi á Vestfjörðum. Snjóþekja og éljagangur er á flestum fjallvegum en ófært er á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðum.

Það er mikið til greiðfært á Norður- og Austurlandi. Krapi er á Öxnadalsheiði og hálkublettir á Mjóafjarðarheiði.

Næturlokanir í Breiðadals- og Botnsheiðargöngum

Vegna viðhaldsvinnu verða Breiðadals- og Botnsheiðargöng, milli Tungudals og Önundarfjarðar, lokuð á nóttunni, frá kl 22.00 til kl 07.00 næstu 3 vikur. Opnað verður á miðnætti í 10 mínútur.  

 Fyrsta lokun verður laugardagskvöldið 5.maí.

Athugið lokunin á einungis við um legginn milli Tungudals og Önundarfjarðar, opið verður á milli Tungudals og Súgandafjarðar.

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.