Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.3.2018
Færð og aðstæður
Á Suðurlandi eru vegir greiðfærir og einnig er
greiðfært á Vesturlandi en þó eru hálkublettir á Holtavörðuheiði.
Vegir á Vestfjörðum eru víða greiðfærir þó er nokkuð um hálku eða
hálkubletti. Snjóþekja og skafrenningur er á Klettshálsi, Þröskuldum og
Steingrímsfjarðarheiði.
Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir á fjallvegum. Snjóþekja og éljagangur er ysta á Siglufjarðarvegi.
Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á Norðaustur- og Austurlandi og víða éljagangur. Skafrenningur er á flestum fjallvegum.
Á Suðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í sumum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn. Sjá nánar hér
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.