Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.3.2018

4.3.2018 14:05

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi eru vegir greiðfærir og einnig er greiðfært á Vesturlandi en þó eru hálkublettir á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. 

Vegir á Vestfjörðum eru víða greiðfærir þó er nokkuð um hálku eða hálkubletti. Snjóþekja og skafrenningur er á Þröskuldum og Steingrímsfjarðarheiði.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en þó eitthvað um hálkubletti.

Norðaustur- og Austurlandi er hálka, hálkublettir eða snjóþekja og víða éljagang.

Á Suðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í sumum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn.   Sjá nánar hér

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.