Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.3.2018

4.3.2018 21:37

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi eru vegir greiðfærir og einnig er að mestu greiðfært á Vesturlandi en þó eru hálkublettir á Holtavörðuheiði og snjóþekja á Svínadal.

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum á Vestfjörðum og víða éljagangur og eins er skafrenningur á flestum fjallvegum. Þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en hálka eða  hálkublettir á fjallvegum.

Það er hálka, hálkublettir, snjóþekja eða þæfingur á Norðaustur- og Austurlandi og víða éljagangur. Skafrenningur er nokkuð víða, einkum á fjallvegum. Færð fer versnandi með kvöldinu á nokkrum fjallvegum, s.s.  á Víkurskarði, Vopnafjarðarheiði og Fjarðarheiði.

Á Suðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í sumum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn.   Sjá nánar hér

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.