Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 4.3.2018

4.3.2018 7:33

Færð og aðstæður

Á Suðurlandi eru vegir greiðfærir og einnig er að mestu greiðfært á Vesturlandi en þar eru hálkublettir á stöku stað.

Vegir á Vestfjörðum eru víða greiðfærir þó er nokkuð um hálku, hálkubletti eða snjóþekju. Þungfært er á Þröskuldum og á Steingrímsfjarðarheiði.


Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en þó eitthvað um hálkubletti. Norðaustanlands er hálka, hálkublettir eða snjóþekja og  eitthvað um éljagang eða snjókomu.

Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja á Austurlandi og víða éljagangur. Þæfingsfærð er á Vatnskarði eystra.

Á Suðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir á nokkrum köflum. 

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í sumum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn.   Sjá nánar hér

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.