Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð og aðstæður
Það eru
hálkublettir í Þrengslum og á Hellisheiði. Hálka eða hálkublettir eru mjög víða á Suðvestur- og Suðurlandi.
Á
Vesturlandi og Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir. Eitthvað er um éljagang á fjallvegum á Vestfjörðum og snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði.
Á Norðurlandi vestra er talsvert autt en þó sums staðar hálka eða hálkublettir og þá helst á fjallvegum og útvegum.
Hálka eða
snjóþekja er á vegum á Norðaustur- og Austurlandi og snjókoma eða éljagangur.
Með suðausturströndinni er talsvert autt en þá er eitthvað um hálkubletti.
Lokun
Í kvöld mánudaginn 6.mars verður akrein til austurs um
Reykjanesbraut lokuð frá Krýsuvíkurvegi og u.þ.b. einn kílómeter áleiðis að
Ásbraut vegna vinnu við borkjarnatöku. Umferð verður beint um hjáleið um
Krýsuvíkurveg og Vallarhverfi í Hafnarfirði. Lokanir og hjáleiðir verða merktar
meðan á framkvæmd stendur.
Lokað veður kl. 19:00 og áætlað er að framkvæmdin standi til kl. 21:30
Tafir
Vegna vinnu í Múlagöngum dagana 5. mars til 7. mars má reikna með umferðartöfum þar frá klukkan 21:00 til 06:00 að morgni.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður viðauki 1 felldur úr
gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá kl. 08:00 þriðjudaginn 7. mars eftirtöldum vegum, Snæfellsnesvegi 54 frá Borgarnesi og öllum vegum á Snæfellsnesi.