Umferðarþjónusta - Tilkynning - 3.9.2018
Malbikun mánudaginn 3.sept - Flúðir
Mánudaginn 3. september er stefnt á að malbika báðar akreinar á Selsvegi á Flúðum, á milli
Högnastígs og Skeiða- og Hrunamannavegar. Annarri akreininni verður lokað
í einu og umferð stýrt í gegnum vinnusvæðið. Viðeigandi merkingar
verða settar upp meðan á framkvæmd stendur.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 10:00 til kl. 18:00.
Vegfarendur
eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við
vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt
akstursbrautum.
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.