Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 3.7.2018

3.7.2018 11:09

Framkvæmdir

Í dag, þriðjudaginn 3. júlí er stefnt að því að malbika akreinar á Njarðarbraut, frá hringtorg við Þjóðbraut að Hafnarbraut. Veginum verður lokað og hjáleiðir merktar. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 og 18:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði

Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti  til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með eitthvað fram júlí. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.

Vegna sérstakra aðstæðna er hlé á framkvæmdum í nokkra daga en næsta áætlaða lokun er aðfaranótt mánudagsins 9. júlí.

Hálendisvegir

Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.