Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 3.3.2018

3.3.2018 10:42

Færð og aðstæður

Á Suður- og Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en eitthvað er um hálkubletti.

Vegir á Vestfjörðum eru  að mestu greiðfærir þó er nokkuð um hálku, hálkubletti eða snjóþekju.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á Þverárfjalli og Vatnsskarði. Norðaustanlands er hálka, hálkublettir eða snjóþekja og éljagangur austan Eyjafjarðar og á norðausturhorni landsins.

Hálka og skafrenningur er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.

Það er hálka eða snjóþekja og eitthvað um skafrenning á Austurlandi. Þungfært er á Vatnsskarði eystra.

Á Suðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir á nokkrum köflum. Mikið hvassviðri er við Lómagnúp og í Öræfum og þar er þó nokkuð sandfok búist er við að veður gangi niður um hádegi.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í sumum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn.   Sjá nánar hér

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Í dag föstudaginn 2. mars er hópur hreindýra nálægt vegi við Ármótasel, ofan Skjöldólfsstaðahnjúks.