Umferðarþjónusta - Tilkynning - 3.3.2018
Færð og aðstæður
Á Suður- og Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en
eitthvað er um hálkubletti.
Vegir á Vestfjörðum eru að mestu greiðfærir þó er nokkuð um hálku, hálkubletti
eða snjóþekju. Þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði og verið að moka.
Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á
Þverárfjalli og Vatnsskarði. Norðaustanlands er hálka, hálkublettir eða
snjóþekja og éljagangur í Eyjafirði og á norðausturhorni landsins.
Hálka og skafrenningur er á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.
Það er hálka eða snjóþekja og eitthvað um skafrenning á Austurlandi. Þungfært
er á Vatnsskarði eystra.
Á Suðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir á nokkrum
köflum. Mikið hvassviðri er við Lómagnúp og í Öræfum og þar er þó nokkuð sandfok búist er við að veður gangi niður um hádegi.
Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í sumum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn. Sjá nánar hér
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Í dag föstudaginn 2. mars er hópur hreindýra nálægt vegi við Ármótasel, ofan Skjöldólfsstaðahnjúks.