Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 3.3.2018

3.3.2018 20:34

Færð og aðstæður

Á Suður- og Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir á stöku stað.

Vegir á Vestfjörðum eru víða greiðfærir þó er nokkuð um hálku eða hálkubletti. Skafrenningur er á Þröskuldum.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á Þverárfjalli og Vatnsskarði. Norðaustanlands er hálka, hálkublettir eða snjóþekja og skafrenningur fyrir austan Mývatn.

Það er hálka, hálkublettir eða snjóþekja og töluverður skafrenningur á Austurlandi.

Á Suðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir á nokkrum köflum. 

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í sumum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn.   Sjá nánar hér

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi. Í dag föstudaginn 2. mars er hópur hreindýra nálægt vegi við Ármótasel, ofan Skjöldólfsstaðahnjúks.