Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 30.8.2018
Ábendingar frá veðurfræðingi
30. ágúst kl 09.00
Hvessir
í dag, einkum vestanlands frá skilum lægðar. SA-átt og hviður allt að 30
m/s á norðanverðu Snæfellsnesi frá kl. 12 Einnig hviður annað slagið
undir Hafnarfjalli frá því kl. 15. Gengur niður í kvöld. Yfir Kaldadal verður
feykihvasst síðdegis og í kvöld og þar sandfok.
Framkvæmdir við Esjumela
Á næstu vikum verður unnið að byggingu hringtorgs og undirganga fyrir gangandi auk vega- og stígagerðar á Esjumelum við Norðurgrafarveg og verður umferð um Vesturlandsveg beint um hjáleið framhjá vinnusvæðinu. Hámarkshraði um framkvæmdasvæðið er 50 km/klst og eru ökumenn hvattir til að virða merkingar á vinnusvæðinu.