Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 28.7.2017

28.7.2017 23:50

Malbikunarframkvæmdir

Á föstudagskvöld 28.júlí og aðfaranótt laugardags 29. júlí er stefnt að því að malbika Rósaselshringtorg í Keflavík. Hringtorginu verður lokað í tveimur áföngum og verður umferðarstýring til og frá flugvelli á meðan framkvæmd stendur yfir. Hjáleiðir verða settar upp, umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum frá kl. 21:00 til kl. 06:00.

Einnig er stefnt á að malbika akreinar á Reykjanesbraut að hringtorginu. Veginum verður lokað á meðan, hjáleiðir settar upp og umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu.

Á sunnudagskvöld 30. júlí og aðfaranótt mánudagsins 31. júlí er stefnt að því að malbika báðar akreinar á Grindavíkurvegi, frá Reykjanesbraut og 700 m suður (kaflinn hefur lengst um 300 m). Annarri akreininni verður lokað í einu á meðan framkvæmd stendur yfir og verður umferðinni stýrt allan tímann. Umferðarhraði verður lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum frá kl. 20.00 til kl. 06:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akbrautum.

Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.

Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Þar að auki er unnið að gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður á framkvæmdasvæðinu og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér