Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 28.6.2018

28.6.2018 14:50

Framkvæmdir

Í dag, fimmtudaginn 28. júní verður unnið að malbikun á akreinum á Hallsvegi milli hringtorga við Langarima og Fjallkonuvegar. Veginum verður lokað og hjáleiðir merktar. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum.  Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 og 16:00.

Einnig verður í dag, fimmtudaginn 28. júní, unnið að viðgerðum á Nýbýlavegi, á milli Kársnesbrautar og Birkigrundar. Þrengt verður að umferð við vinnusvæðin og umferð stýrt framhjá ef þarf á meðan framkvæmdum stendur. Vinnan fer fram frá kl. 09:00 og fram eftir degi.

Á morgun, föstudaginn 29. júní  er stefnt á að fræsa Njarðarbraut frá hringtorgi við Þjóðbraut að Hafnarbraut í Reykjanesbæ. Kaflanum verður lokað og hjáleiðir merktar. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 til kl. 17:00

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Wow cyclothon hjólreiðakeppni

Wow Cyclothon er nú hafin og verður hjólað réttsælis um landið næstu daga.  Síðustu keppendur klára hringinn kl. 19.00 laugardaginn 30. júní. Vegfarendur á hringvegi eru beðnir um að sýna þolinmæði og tillitsemi gagnvart hjólreiðafólki og fylgdarliði meðan á keppni stendur.

Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði

Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti  til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með megninu af júní. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.

Vegna sérstakra aðstæðna verða göngin þó opin aðfaranótt föstudagsins 29. júní.

Hálendisvegir

Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.