Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 28.2.2018

28.2.2018 19:43

Færð og aðstæður

Á Suður- og Vesturlandi eru vegir víðast hvar greiðfærir en þoka er á nokkrum fjallvegum. 

Á Vestfjörðum og Norðurlandi eru vegir víða greiðfærir en hálka, hálkublettir og þoka á nokkrum fjallvegum. 

Á Austur- og suðausturlandi eru vegir greiðfærir.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í flestum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn.   Sjá nánar hér

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.