Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 28.2.2018
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir um allt land en þoka á nokkrum fjallvegum á Vesturlandi og Vestfjörðum.Skemmdir á slitlagi
Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í flestum landshlutum. Á fáeinum leiðum er ásþungi takmarkaður við 7 tonn. Sjá nánar hér
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.