Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 27.7.2017

27.7.2017 8:16

Malbikunarframkvæmdir

Í kvöld, fimmtudaginn 27. júlí og aðfaranótt 28. júlí er stefnt að því að malbika hringtorg á Reykjanesbraut við N1 í Hafnarfirði. Hringtorginu verður lokað á meðan framkvæmd stendur yfir og hjáleiðir settar upp. Umferðarhraði verður lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 21:00 til kl. 06:00.

Á föstudagskvöld 28.júlí og aðfaranótt laugardags 29. júlí er stefnt að því að malbika Rósaselshringtorg í Keflavík. Hringtorginu verður lokað í tveimur áföngum og verður umferðarstýring til og frá flugvelli á meðan framkvæmd stendur yfir. Hjáleiðir verða settar upp, umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum.

Einnig er stefnt á að malbika akreinar á Reykjanesbraut að hringtorginu. Veginum verður lokað á meðan, hjáleiðir settar upp og umferðarhraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akbrautum.

Viðhaldsframkvæmdir

Vegagerðin varar við töluverðum viðhaldsframkvæmdum á Hringvegi frá Borgarnesi að Laugabakka í Miðfirði næstu daga. Vegfarendur geta búist við umferðarstýringu við framkvæmdasvæðið með 10-15 mínútna bið í senn.

Einnig er unnið við blettanir í Dölunum.

Vegfarendur eru beðnir að aka varlega um nýlögð svæði, virða stöðvunarskyldu og hraðatakmarkanir á vinnusvæðum til að lágmarka umferðartafir og tjón vegna steinkasts.


Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.

Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Þar að auki er unnið að gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður á framkvæmdasvæðinu og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér