Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 27.6.2018

27.6.2018 12:09

Framkvæmdir

Í dag miðvikudaginn 27. júní verður unnið við að malbika akreinar á milli hringtorga og aðra akrein á Innnesvegi á Akranesi og verður veginum lokað og hjáleiðir merktar. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 og 20:00.

Einni verður unnið við viðgerðir á Nýbýlavegi, á milli Kársnesbrautar og Birkigrundar, í dag miðvikudaginn 27.júní. Þrengt verður að umferð við vinnusvæðin og umferð stýrt framhjá ef þarf á meðan framkvæmdum stendur. Vinnan fer fram frá kl. 10:00 og fram eftir degi.

Á miðvikudagskvöld, 27. júní  og aðfaranótt fimmtudagsins 28. júní er stefnt að því að malbika Þingvallaveg, frá hringtorgi við Vesturlandsveg og 400m áleiðis. Annarri akreininni verður lokað í einu og umferð stýrt framhjá. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 20:00 og 07:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Wow cyclothon hjólreiðakeppni

Wow Cyclothon er nú hafin og verður hjólað réttsælis um landið næstu daga.  Síðustu keppendur klára hringinn kl. 19.00 laugardaginn 30. júní. Stærsti hluti þátttakanda mun leggja af stað frá Egilshöll kl 18.00 og 19.00 í kvöld, miðvikudagskvöld 27. júní og mun byrja á að hjóla upp Mosfellssveit, yfir Kjósarskarð og áfram upp í Hvalfjörð. Vegfarendur á hringvegi eru beðnir um að sýna þolinmæði og tillitsemi gagnvart hjólreiðafólki og fylgdarliði meðan á keppni stendur.

Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði

Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti  til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með megninu af júní. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.

Hálendisvegir

Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér

Viðgerð á Miðfjarðarárbrú

Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.