Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 27.6.2017

27.6.2017 11:43

Malbikun á Höfuðborgarsvæðinu

Mánudaginn og þriðjudaginn 26. – 27. júní er stefnt að því að malbika báðar akreinar á Sæbraut, frá gatnamótum við Skeiðarvog að gatnamótum við Miklubraut. Á mánudeginum er stefnt á að taka báðar akreinar frá Skeiðarvogi að gatnamótum við Naustavog, á þriðjudeginum verður síðan haldið áfram með hlutann fram að Miklubraut. Annarri akreininni verður lokað í einu, umferðarhraði verður lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 05:00 til 16:00. 

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu nálægt akstursbrautum.

Malbikun á Garðsvegi

Þriðjudaginn 27. júní verður malbikað hægri og vinstri öxl á Garðvegi, frá hringtorginu Mánatorgi að Hólmsvelli. Annarri akreininni verður lokað í einu, umferðarhraði verður lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl 09:00 til kl. 18:00. 

Þriðjudagskvöld og aðfaranótt 28 júní er stefnt að því að malbika hringtorgið Melatorg og öllum akreinum að hringtorginu verður lokað á meðan. Settar verða upp hjáleiðir og búast má við lítilsháttar umferðartöfum. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 21:00 til kl. 07:00. 

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna vinnu við sprengingar á framkvæmdasvæðinu þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.

Krýsuvíkurvegi hefur verið lokað tímabundið, milli Rauðhellu og hringtorgs við Hraunhellu / Hringhellu. Merkt hjáleið er um Rauðhellu og Hringhellu á meðan lokun Krýsuvíkurvegar varir (u.þ.b. til 24 júní).

Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017. - Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðin.

Þar að auki er unnið að gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut (41), Annarsvegar við Aðalgötu og hinsvegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður í gegnum framkvæmdasvæðið og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september 2017. Ökumenn eru hvattir til aka varlega um framkvæmdasvæðið og virða merkingar á staðnum.

Umferðartafir á Hringvegi

Vegna endurbóta á Hringvegi í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu er umferðarhraði takmarkaður við 50 km/klst á framkvæmdasvæðinu fram í miðjan júlí. Þrengt er að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir. - Vegfarendur eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu á og við akbrautina.

Búast má við umtalsverðum umferðartöfum á brúnni á Jökulsá í Lóni, um 20-30 mín í senn, milli kl 07.00 – 19.00  fram til 15. júlí vegna framkvæmda.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.