Umferðarþjónusta - Tilkynning - 27.6.2017
Malbikun á Höfuðborgarsvæðinu
Mánudaginn og þriðjudaginn 26. – 27. júní er stefnt að því að malbika báðar akreinar á Sæbraut, frá gatnamótum við Skeiðarvog að gatnamótum við Miklubraut. Á mánudeginum er stefnt á að taka báðar akreinar frá Skeiðarvogi að gatnamótum við Naustavog, á þriðjudeginum verður síðan haldið áfram með hlutann fram að Miklubraut. Annarri akreininni verður lokað í einu, umferðarhraði verður lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum. Lokanir verða merktar meðan á framkvæmd stendur.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 05:00 til kl. 16:00. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Vaðlaheiðarvegur
Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.
Malbikun á Garðsvegi
Þriðjudaginn 27. júní verður malbikað hægri og vinstri öxl á Garðvegi, frá hringtorginu Mánatorgi að Hólmsvelli. Annarri akreininni verður lokað í einu, umferðarhraði verður lækkaður framhjá vinnusvæðinu og má búast við lítilsháttar umferðartöfum. Lokanir verða merktar meðan á framkvæmd stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl 09:00 til kl. 18:00. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi
Unnið er við mislæg
vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á
Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna vinnu við
sprengingar á framkvæmdasvæðinu þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman
tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.
Krýsuvíkurvegi hefur verið lokað tímabundið, milli Rauðhellu og hringtorgs við Hraunhellu / Hringhellu. Merkt hjáleið er um Rauðhellu og Hringhellu á meðan lokun Krýsuvíkurvegar varir (u.þ.b. til 24 júní).
Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg). Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017. - Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðin.
Þar að auki er unnið að gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut (41), Annarsvegar við Aðalgötu og hinsvegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður í gegnum framkvæmdasvæðið og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september 2017. Ökumenn eru hvattir til aka varlega um framkvæmdasvæðið og virða merkingar á staðnum.
Umferðartafir á Hringvegi
Vegna endurbóta á Hringvegi í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu er umferðarhraði takmarkaður við 50 km/klst á framkvæmdasvæðinu fram í miðjan júlí. Þrengt er að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir. - Vegfarendur eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu á og við akbrautina.
Búast má við umtalsverðum umferðartöfum á brúnni á Jökulsá í Lóni, um 20-30 mín í senn, milli kl 07.00 – 19.00 fram til 15. júlí vegna framkvæmda.