Umferðarþjónusta - Tilkynning - 27.4.2017
Frá veðurfræðingi
Athygli vegfarenda er vakin á því að suðvestan- og
vestanlands kólnar skart næstu klukkustundirnar. Á Hellisheiði, í Þrengslum,
á Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði kemur til með að snjóa nokkuð, einkum á milli
kl. 12 og 15. Él eftir það. Einnig um miðjan dag á Vatnaleið,
Bröttubrekku og Holtavörðuheiði.
Færð og aðstæður
Þrátt fyrir að hafi éljað á suðvesturhorni landsins eru allir vegir auðir en á Vestfjörðum eru hálkublettir á Mikladal og snjóþekja á Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði. Vegurinn af Dynjandisheiðinni niður í Trostansfjörð er mjög illa farinn af aurbleytu og ekki fær nema fjórhjóladrifnum bílum.Hvalfjarðargöng - næturlokun
Vegna viðhalds og þrifa verða göngin lokuð í nótt, frá miðnætti til kl. 6 í fyrramálið, föstudaginn 28. apríl.
Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar
Vinna er hafin við gerð
mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar. Því þarf
að takamarka umferðarhraða á vinnusvæðinu við 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að
stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í stutta stund (2-3 mínútur í senn), allt að þrisvar
sinnum á dag.
Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða merkingar við vinnusvæðið.
Lokun Eyravegar á Selfossi
Gatnamót Eyravegar og Kirkjuvegar á Selfossi eru lokuð vegna
lagnaframkvæmda. Umferð er
vísað hjáleið um Tryggvagötu meðan á framkvæmdum stendur. Vonast er til að vinnu ljúki í fyrstu viku júní. Sjá nánar hér.
Hálendisvegir að vori
Þegar frost er að fara úr jörð getur jarðvegur orðið mjög gljúpur og viðkvæmur. Þetta á m.a. við um lélega malarvegi og frumstæða slóða líkt og á hálendinu. Akstur er þá bannaður til að koma í veg fyrir skemmdir, bæði á vegunum sjálfum og landi og gróðri sem geta skemmst illa ef ekið er út fyrir veg. Akstursbann hefur nú verið sett á fáeina vegi eins og sjá má á færðarkortinu.
Þungatakmarkanir
Ásþungi er takmarkaður við tvö tonn á Bíldudalsvegi (63) milli Bíldudals og Dynjandisheiðar en sjö tonn á Vestfjarðavegi (60) milli Flókalundar og Þingeyrar.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru um miðjan júní.