Umferðarþjónusta - Tilkynning - 27.2.2018
Færð og aðstæður
Greiðfært er á Suður- og Vesturlandi. Þoka er á Hellisheiði og Þrengslum eins er þoka á Fróðárheiði. Allhvass vindur er á norðanverðu Snæfellsnesi.
Á Norðurlandi, Austurlandi og Suðausturlandi eru vegir greiðfærir.
Skemmdir á slitlagi
Í því veðurfari sem hefur gengið yfir að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi miðaður við 10 tonn í flestum landshlutum. Sjá nánar hér
Þingskálavegur
Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.
Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.