Umferðarþjónusta - Tilkynning - 26.6.2018
Framkvæmdir
Í dag, þriðjudaginn 26. júní, er unnið að því að fræsa hringtorg í Grindavík við Gerðavelli og báðar akreinar á Víkurbraut sunnan við hringtorgið. Veginum og hringtorginu verður lokað og hjáleiðir merktar. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum milli kl. 09:00 og 14:00.
Í kvöld, þriðjudagskvöld 26. júní og aðfaranótt miðvikudags 27. júní er stefnt að því að malbika ramp frá
Höfðabakka niður Ártúnsbrekku. Rampinum verður lokað og hjáleiðir merktar.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 20:00 og 06:00.
Miðvikudaginn 27. júní er stefnt að því að malbika akreinar á milli hringtorga og
aðra akrein á Innnesvegi á Akranesi og verður veginum lokað og hjáleiðir merktar. Búast má við lítilsháttar
umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 08:00 og 20:00.
Einnig er á morgun, miðvikudag, stefnt að því að fræsa
akreinar á Hallsvegi milli hringtorga við Langarima og Fjallkonuvegar. Veginum
verður lokað og hjáleiðir merktar. Búast má við lítilsháttar umferðartöfum.
Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir milli kl. 09:00 og 14:00.
Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Wow cyclothon hjólreiðakeppni
Wow Cyclothon byrjar í dag, þriðjudaginn 26. júní, kl. 15.00 í Reykjavík og verður hjólað réttsælis um landið næstu daga. Síðustu keppendur klára hringinn kl. 19.00 laugardaginn 30. júní. Vegfarendur á hringvegi eru beðnir um að sýna þolinmæði og tillitsemi gagnvart hjólreiðafólki og fylgdarliði meðan á keppni stendur.
Lokanir í jarðgöngum undir Breiðadalsheiði
Vegna vinnu við vatnsvarnir verður Breiðadalsleggur (til/frá Önundarfirði) lokaður yfir nóttina virka daga, frá miðnætti til kl. 7:00. - Óljóst er hversu langan tíma þetta tekur en reikna má með megninu af júní. Þetta hefur ekki áhrif á umferð milli Súgandafjarðar og Skutulsfjarðar.
Hálendisvegir
Hálendisvegir eru óðum að opnast en engu að síður er enn akstursbann á allmörgum hálendisvegum og slóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð. Rétt er að ítreka að það er lögbrot að fara inn á veg sem merktur er með skiltinu allur akstur bannaður. Sjá nánar hér
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.