Umferðarþjónusta - Tilkynning - 26.4.2017
Færð og aðstæður
Langflestir vegir eru auðir í öllum landshlutum en þó er á Vestfjörðum snjóþekja á Dynjandisheiði og hálka á Hrafnseyrarheiði, og á Austurlandi er hálka á Mjóafjarðarheiði.Hvalfjarðargöng - næturlokanir
Vegna viðhalds og þrifa verða göngin lokuð yfir nóttina (frá miðnætti til kl. 6 að morgni) fram á föstudag 28. apríl.
Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar
Vinna er hafin við gerð
mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar. Því þarf
að takamarka umferðarhraða á vinnusvæðinu við 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að
stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í stutta stund (2-3 mínútur í senn), allt að þrisvar
sinnum á dag.
Vegfarendur eru beðnir að sýna aðgát og virða merkingar við vinnusvæðið.
Lokun Eyravegs á Selfossi
Gatnamót Eyravegar og Kirkjuvegar á Selfossi eru lokuð vegna
lagnaframkvæmda. Umferð er
vísað hjáleið um Tryggvagötu meðan á framkvæmdum stendur. Vonast er til að vinnu ljúki í fyrstu viku júní. Sjá nánar hér.
Þungatakmarkanir
Enn eru í gildi 7 tonna ásþungatakmarkanir á Bíldudalsvegi (63) milli Bíldudals og Dynjandisheiðar, og á Vestfjarðavegi (60) milli Flókalundar og Þingeyrar.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru um miðjan júní.