Umferðarþjónusta - Tilkynning - 26.4.2017
Færð og aðstæður
Það er greiðfært á Suður- og Vesturlandi.
Á Vestfjörðum er víðast greiðfært. hálka og þoka er á Hrafnseyrarheiði og í Trostansfirði en flughált á Dynjandisheiði. Þoka er á fjallvegum á sunnanverðum fjörðunum.
Vegir á Norðurlandi eru víðast auðir.
Greiðfært er á Austur- og Suðausturlandi. Hálka er á Mjóafjarðarheiði.
Hvalfjarðargöng næturlokanir
Vegna viðhalds og þrifa verða göngin lokuð:
Frá miðnætti að kvöldi miðvikudags 26. apríl til kl. 6 að morgni fimmtudags 27. apríl.
Frá miðnætti að kvöldi fimmtudags 27. apríl til kl. 6 að morgni föstudags 28. apríl
Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar
Vinna er hafin við gerð
mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar.
Vegna framkvæmdanna þarf að takamarka umferðarhraða á framkvæmdasvæðinu og færa hann niður í 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Umferð verður stöðvuð í 2-3 mínútur í senn af þessum sökum.
Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.
Lokun Eyravegs á Selfossi
Gatnamót Eyravegar og Kirkjuvegar á Selfossi eru lokuð vegna lagnaframkvæmda frá 24. apríl og stendur lokunin í allt að 6 vikur. Umferð er vísað á hjáleið um Tryggvagötu á meðan framkvæmdum stendur
Sjá nánar hér.
Þungatakmarkanir
Enn eru í gildi 7 tonna ásþungatakmarkanir á Bíldudalsvegi (63) milli Bíldudals og Dynjandisheiðar og á Vestfjarðavegi (60) milli Flókalundar og Þingeyrar.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru um miðjan júní.