Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 26.3.2017

26.3.2017 7:50

Færð og aðstæður

Það eru hálkublettir á Sandskeiði, Hellisheiði, Þrengslum en snjóþekja og snjókoma á Lyngdalsheiði annars eru leiðir á Suðurlandi að mestu greiðfærir.

Á Vesturlandi eru hálkublettir eða snjóþekja á nokkrum leiðum og eitthvað um éljagang. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku, Fróðárheiði og í Svínadal.

Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á nokkrum heiðum og hálsum á Vestfjörðum. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði.

Á Norðurlandi er að mestu autt en þó eru hálkublettir á nokkrum stöðum. Hálkublettir og éljagangur er á Vatnsskarði og á Öxnadalsheiði. Hálka er á Dettifossvegi.

Vegir eru að mestu auður á Austur- og Suðausturlandi þó er eitthvað um hálkubletti.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá  á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.