Umferðarþjónusta - Tilkynning - 26.3.2017
Færð og aðstæður
Það er snjóþekja á Sandskeiði, Hellisheiði, Þrengslum og Lyngdalsheiði en hálkublettir á Mosfellsheiði annars eru leiðir á Suðurlandi að mestu greiðfærir.
Á Vesturlandi eru hálkublettir eða snjóþekja á nokkrum leiðum. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku, Fróðárheiði og í Svínadal.
Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á nokkrum heiðum og hálsum á Vestfjörðum. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði.
Á Norðurlandi er að mestu autt en þó eru hálkublettir á nokkrum stöðum. Hálkublettir og éljagangur er á Öxnadalsheiði. Hálka er á Dettifossvegi.
Vegir eru að mestu auður á Austur- og Suðausturlandi þó er eitthvað um hálkubletti.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.