Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 26.3.2017

26.3.2017 6:38

Lokað um Steingrímsfjarðarheiði

Steingrímsfjarðarheiði hefur verið lokuð en búist er við að hún opni á milli kl 8:00 - 9:00 .

Færð og aðstæður

Það er snjóþekja og snjókoma á Sandskeiði, Hellisheiði, Þrengslum og Lyngdalsheiði en hálkublettir á Mosfellsheiði annars eru leiðir á Suðurlandi að mestu greiðfærir.

Á Vesturlandi eru hálkublettir eða snjóþekja á nokkrum leiðum. Snjóþekja er á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Annars er verið að skoða flestar leiðir á Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðvesturlandi og koma upplýsingar um það fljótlega.

Vegir eru að mestu auðir á Norðausturlandi, Austur- og Suðausturlandi þó er eitthvað um hálkubletti.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá  á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.