Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 25.7.2017

25.7.2017 8:34

Framkvæmdir við hringtorg við Hveragerði

Enn er unnið við malbikun á Hringtorgi við Hveragerði og er áætlað að verkinu ljúki um 09.30. Umferðarstjórnun er á staðnum. Vegna framkvæmdanna er Hellisheiði lokuð til austurs..

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Í dag þriðjudaginn 25. júlí verður unnið við malbikun á báðum akreinum á Suðurlandsvegi á milli Kögunarhóls og Þórustaðanámu. Annari akreininni verður lokað í einu og verður umferð stýrt framhjá vinnusvæðinu. Áætlað er að framkvæmdirnar standi fram eftir degi.

Einnig veður unnið við malbikun á Eyrarvegi á Selfossi, frá hringtorgi við Ölfusárbrú og upp fyrir gatnamótin við Kirkjuveg. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl 17.00 til kl. 00.00.

Aðfaranótt miðvikudags 26. júlí er einnig stefnt að því að malbika hringtorg við Ölfusárbrú á Selfossi. Ölfusárbrú ásamt hringtorgi verður lokað fyrir alla umferð og verður umferð beint um Eyrarbakkaveg og Þrengslaveg. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 00:00 til kl. 06:00.

Miðvikudaginn 26. júlí er stefnt að því að malbika aðra akreinina á Suðurlandsveg frá hringtorgi við Toyota á Selfossi í áttina að Biskupstungnabraut. Akreininni verður lokað og verður umferð stýrt framhjá. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 07:00 til kl. 12:00.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akbrautum.

Viðhaldsframkvæmdir

Vegagerðin varar við töluverðum viðhaldsframkvæmdum á Hringvegi frá Holtavörðuheiði að Blönduósi næstu daga. Vegfarendur geta búist við umferðarstýringu við framkvæmdasvæðið með 10-15 mínútna bið í senn.

Vegfarendur eru beðnir að aka varlega um nýlögð svæði, virða stöðvunarskyldu og hraðatakmarkanir á vinnusvæðum til að lágmarka umferðartafir og tjón vegna steinkasts.


Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.

Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Þar að auki er unnið að gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður á framkvæmdasvæðinu og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér