Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 25.5.2017

25.5.2017 9:52

Umferðartafir á Hringvegi

Vegna endurbóta á Hringvegi í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu er umferðarhraði takmarkaður við 50 km/klst á framkvæmdasvæðinu fram í miðjan júlí. Þrengt er að umferð og má búast við lítilsháttar umferðartöfum á meðan framkvæmdir standa yfir.

Vegfarendur eru beðnir um að virða hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið þar sem menn og tæki eru við vinnu á og við akbrautina.

Þungatakmarkanir á Vestfjarðarvegi (60)

Vegna viðgerða á brú á Þverdalsá á sunnanverðri Dynjandisheiði er ásþungi takmarkaður við 2 tonn frá Flókalundi að Helluskarði til hádegis í dag, fimmtudaginn 25. maí. Hægt er að fara Barðastrandarveg nr. 62 og Bíldudalsveg nr. 63.

Umferðartafir við Jökulsá í Lóni

Búast má við umtalsverðum umferðartöfum á brúnni á Jökulsá í Lóni, um 20-30 mín í senn, milli kl 07.00 – 19.00  fram til 30. júní vegna framkvæmda.

Hálendisvegir að vori

Þegar frost er að fara úr jörð getur jarðvegur orðið mjög gljúpur og viðkvæmur. Þetta á m.a. við um lélega malarvegi og frumstæða slóða líkt og á hálendinu. Akstur er þá bannaður til að koma í veg fyrir skemmdir, bæði á vegunum sjálfum og landi og gróðri sem geta skemmst illa ef ekið er út fyrir veg. Akstursbann nú víða á hálendinu.

Lokun Eyravegar á Selfossi

Gatnamót Eyravegar og Kirkjuvegar á Selfossi eru lokuð vegna lagnaframkvæmda. Umferð er vísað hjáleið um Tryggvagötu meðan á framkvæmdum stendur. Vonast er til að vinnu ljúki í fyrstu viku júní.  Sjá nánar hér.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru um miðjan júní.

Þungatakmarkanir

Vegna aurbleytu og hættu á skemmdum eru sérstakar ásþungatakmarkanir á fáeinum vegum á Norðausturlandi og á Vestfjörðum.