Umferðarþjónusta - Tilkynning - 25.4.2017
Færð og aðstæður
Það er greiðfært á Suðurlandi en á Vesturlandi eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum.
Á Vestfjörðum er víða snjóþekja eða hálkublettir á heiðum og hálsum en greiðfært að mestu á láglendi. Þoka er á fjallvegum á sunnanverðum fjörðunum og á Hrafnseyrarheiði. Þæfingsfærð er á Dynjandisheiði og skafrenningur. Snjóþekja er norður í Árneshrepp.
Vegir á Norðurlandi eru víðast auðir en þó eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum og snjóþekja á Þverárfjalli og Dettifossvegi.
Greiðfært er að mestu á Austur- og Suðausturlandi en hálkublettir eru á Háreksstaðaleið og Fjarðarheiði.
Lokun Víðidalsvegar í Húnavatnssýslu
Víðidalsvegur nr. 715 verður lokaður í dag norðan við Þórukot vegna ræsagerðar frá 09.00 til 18.00.
Hvalfjarðargöng næturlokanir
Vegna viðhalds og þrifa verða göngin lokuð:
Frá miðnætti að kvöldi þriðjudags 25. apríl til kl. 6 að morgni miðvikudags 26. apríl.
Frá miðnætti að kvöldi miðvikudags 26. apríl til kl. 6 að morgni fimmtudags 27. apríl.
Frá miðnætti að kvöldi fimmtudags 27. apríl til kl. 6 að morgni föstudags 28. apríl
Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar
Vinna er hafin við gerð
mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar.
Vegna framkvæmdanna þarf að takamarka umferðarhraða á framkvæmdasvæðinu og færa hann niður í 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Umferð verður stöðvuð í 2-3 mínútur í senn af þessum sökum.
Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.
Lokun Eyravegs á Selfossi
Lokun á þjóðvegi nr. 34 við gatnamót Eyravegar og Kirkjuvegar á Selfossi
Sjá nánar hér.
Þungatakmarkanir
Enn eru í gildi 7 tonna ásþungatakmarkanir á Bíldudalsvegi (63) milli Bíldudals og Dynjandisheiðar og á Vestfjarðavegi (60) milli Flókalundar og Þingeyrar.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru um miðjan júní.