Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 25.4.2017

25.4.2017 7:51

Færð og aðstæður

Það er greiðfært á Suðurlandi en á Vesturlandi er hálka á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði og hálkublettir á Fróðárheiði.

Á Vestfjörðum eru sumstaðar hálkublettir eða hálka á heiðum og hálsum en greiðfært að mestu á láglendi. Þungfært er á Steingrímsfjarðarheiði eftir nóttina en unnið að hreinsun. Þæfingsfærð er á Hrafnseyrarheiði en Dynjandisheiði er enn ófær. Snjóþekja er norður í Árneshrepp.

Vegir á Norðurlandi eru víðast auðir en þó eru hálkublettir á nokkrum fjallvegum og snjóþekja á Dettifossvegi.

Greiðfært er að mestu á Austur- og Suðausturlandi en hálkublettir eru á Háreksstaðaleið og Fjarðarheiði.

Hvalfjarðargöng næturlokanir

Vegna viðhalds og þrifa verða göngin lokuð:

Frá miðnætti að kvöldi þriðjudags 25. apríl til kl. 6 að morgni miðvikudags 26. apríl.

Frá miðnætti að kvöldi miðvikudags 26. apríl til kl. 6 að morgni fimmtudags 27. apríl.

Frá miðnætti að kvöldi fimmtudags 27. apríl til kl. 6 að morgni föstudags 28. apríl

Umferðartafir á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar

Vinna er hafin við gerð mislægra vegamóta Reykjanesbrautar í Hafnarfirði og Krýsuvíkurvegar.

Vegna framkvæmdanna þarf að takamarka umferðarhraða á framkvæmdasvæðinu og færa hann niður í 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð um vinnusvæðið á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag. Umferð verður stöðvuð í 2-3 mínútur í senn af þessum sökum.

Vegfarendur eru hvattir til að sýna aðgát og virða umferðarmerkingar við vinnusvæðið.

Lokun Eyravegs á Selfossi

Lokun á þjóðvegi nr. 34 við gatnamót Eyravegar og Kirkjuvegar á Selfossi

Sjá nánar hér.

Þungatakmarkanir

Enn eru í gildi 7 tonna ásþungatakmarkanir á Bíldudalsvegi (63) milli Bíldudals og Dynjandisheiðar og  á Vestfjarðavegi (60) milli Flókalundar og Þingeyrar.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru um miðjan júní.