Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 25.3.2017

25.3.2017 9:56

ATH!

Hurðin í Oddsskarðsgöngum er biluð og er vegurinn því lokaður um tíma á meðan á viðgerð stendur.

Færð og aðstæður

Vegir á Suðurlandi eru að mestu auðir.

Það er víðast hvar greiðfært á Vesturlandi, þó er hálkublettir á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku.

Hálka, hálkublettir eða krapi er á nokkrum heiðum á Vestfjörðum en nánast autt á láglendi. Snjóþekja er á Steingrímsfjarðarheiði. Flughálka og óveður á Hálfdán. Mikið hvassviðri er nokkuð víða.  

Á Norðurlandi er að mestu autt á láglendi en hálkublettir eru Hólasandi en snjóþekja á Dettifossvegi. Nokkuð víða er mjög hvasst.

Hálkublettir eru á Háreksstaðarleið og á köflum á Austurlandi, einkum á fjallvegum þar er einnig nokkuð hvasst. Vegur er auður með suðausturströndinni.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá  á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.