Umferðarþjónusta - Tilkynning - 25.3.2017
ATH!
Hurðin í Oddsskarðsgöngum er biluð og er vegurinn því lokaður um tíma á meðan á viðgerð stendur.
Færð og aðstæður
Vegir á Suðurlandi eru að mestu auðir.
Það er víðast hvar greiðfært á Vesturlandi, þó er hálkublettir á Bröttubrekku.
Hálka, hálkublettir eða krapi er á nokkrum heiðum á Vestfjörðum en nánast autt á láglendi. Snjóþekja er á Steingrímsfjarðarheiði. Flughálka og óveður á Hálfdán. Mikið hvassviðri er nokkuð víða.
Á Norðurlandi er að mestu autt á láglendi en hálkublettir eru Hólasandi en snjóþekja á Dettifossvegi. Nokkuð víða er mjög hvasst.Hálkublettir eru á Háreksstaðarleið og á köflum á Austurlandi, einkum á fjallvegum þar er einnig nokkuð hvasst. Vegur er auður með suðausturströndinni.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.