Umferðarþjónusta - Tilkynning - 25.3.2017
Lokað um Steingrímsfjarðarheiði
Steingrímsfjarðarheiði hefur verið lokuð vegna veðurs frá því um miðjan dag og verður áfram lokuð í nótt.
Færð og aðstæður
Vegir á Suðurlandi eru greiðfærir. Á Vesturlandi eru hálkublettir á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku.
Hálka, hálkublettir eða krapi er á nokkrum heiðum og hálsum á Vestfjörðum. Nokkur hálka er einnig í utanverðu Ísafjarðardjúpi. Lokað er um Steingrímsfjarðarheiði. Víða er hvasst.
Á Norðurlandi er að mestu autt en þó eru hálkublettir á Vatnsskarði og á fáeinum útvegum. Sums staðar er nokkuð hvasst.Allar aðalleiðir á Austur- og Suðausturlandi eru greiðfærar.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.