Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 25.3.2017

25.3.2017 16:16

Lokað um Steingrímsfjarðarheiði

Steingrímsfjarðarheiði er lokuð vegna veðurs, þar er éljagangur, mikill skafrenningur og blint. Staðan verður tekin aftur um klukkan 16:30.

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Vesturlandi eru greiðfærir.

Hálka, hálkublettir eða krapi er á nokkrum heiðum og hálsum á Vestfjörðum en nánast autt á láglendi. Lokað er um Steingrímsfjarðarheiði. Víða er hvasst.  

Á Norðurlandi er að mestu autt þótt hálkublettir eða snjóþekja séu á fáeinum útvegum. Sums staðar er hvasst.

Það er ýmist alveg autt eða aðeins í hálkublettum á Austurlandi og vegur er auður með suðausturströndinni.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá  á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.