Umferðarþjónusta - Tilkynning - 25.3.2017
Lokað
Lokað er um Steingrímsfjarðarheiði vegna veðurs, mikill skafrenningur og blint. Verður skoðuð aftur klukkan 16:30
Færð og aðstæður
Vegir á Suður- og Vesturlandi eru greiðfærir.
Hálka, hálkublettir eða krapi er á nokkrum heiðum á Vestfjörðum en nánast autt á láglendi. Lokað er um Steingrímsfjarðarheiði. Mikið hvassviðri er nokkuð víða.
Á Norðurlandi er að mestu autt en hálkublettir eru Hólasandi og snjóþekja á Dettifossvegi. Nokkuð víða er mjög hvasst.Greiðfært er að mestu á Austurlandi en krapi er á Möðrudalsöræfum. Vegur er auður með suðausturströndinni.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.
Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.