Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 25.3.2017

25.3.2017 13:26

Færð og aðstæður

Vegir á Suðurlandi eru að mestu auðir.

Það er víðast hvar greiðfært á Vesturlandi, þó er hálkublettir á Bröttubrekku.

Hálka, hálkublettir eða krapi er á nokkrum heiðum á Vestfjörðum en nánast autt á láglendi. Snjóþekja og skafrenningur er á Steingrímsfjarðarheiði. Mikið hvassviðri er nokkuð víða.  

Á Norðurlandi er að mestu autt en hálkublettir eru Hólasandi og snjóþekja á Dettifossvegi. Nokkuð víða er mjög hvasst.

Greiðfært er að mestu á Austurlandi en krapi er á Möðrudalsöræfum. Vegur er auður með suðausturströndinni.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá  á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.