Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 25.3.2017

25.3.2017 6:32

Færð og aðstæður

Vegir á Suðurlandi eru að mestu auðir.

Það er víðast hvar greiðfært á Vesturlandi. Þó eru hálkublettir m.a. á Holtavörðuheiði og Svínadal en krap á Bröttubrekku og Fróðárheiði. Það er hvasst á norðanverðu Snæfellsnesi.

Hálkublettir, hálka eða snjóþekja er á nokkrum heiðum og hálsum á Vestfjörðum en nánast autt á láglendi. Þæfingsfærð er á Steingrímsfjarðarheiði.

Á Norðurlandi er að mestu autt á láglendi en hálkublettir eru m.a. á Þverárfjalli, Vatnsskarði og Öxnadalsheiði.

Hálkublettir eru yfir Mývatns- og  Möðrudalsöræfi og á köflum á Austurlandi, einkum á fjallvegum. Vegur er auður með suðausturströndinni.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá  á eftirtöldum vegum: Vestfjarðavegi 60 frá Hringvegi 1 við Dalsmynni, Barðastrandarvegi 62, Bíldudalsvegi 63, Djúpvegi 61 að Flugvallarvegi Skutulsfirði, Laxárdalsheiði 59, Innstrandavegi 68 frá Borðeyri og á Drangsnesvegi 643.

Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin lokuð og umferð er stýrt með ljósum. Áætluð verklok eru 15. júní 2017.