Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 24.7.2017

24.7.2017 12:51

Framkvæmdir á Suðurlandsvegi

Mánudaginn 24. júlí er unnið við malbikun á báðum akreinum niður Kambana , frá bílastæði á Kambabrún og 2 km niður brekkuna. Lokað verður fyrir umferð til austurs um Suðurlandsveg og umferð beint um Þrengslaveg. Umferð sem á erindi í Hellisheiðarvirkjun verður hleypt framhjá. Áætlað er að þessi framkvæmd   standi yfir fram til 21:00.

Einnig verður unnið við malbikun á hringtorgi við Hveragerði frá kl 22.00 mánudagskvöldið 24. júlí til  kl 04.00 aðfaranótt þriðjudags, 25. júlí.  Áfram verður lokað fyrir umferð til austur um Suðurlandsveg og verður umferð beint um Þrengslaveg en þeim sem eiga erindi við Hellisheiðarvirkjun verður hleypt framhjá. Sömu nótt er svo stefnt að því að malbika báðar akreinar á Suðurlandsvegi á milli Kögunarhóls og Þórustaðanámu og verður umferðarstýring á svæðinu.  Aðfaranótt miðvikudags er svo stefnt á að malbika hringtorg við Ölfusárbrú en þá verður Suðurlandsvegur lokaður við Ölfusárbrú.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akbrautum.

Viðhaldsframkvæmdir

Vegagerðin varar við töluverðum viðhaldsframkvæmdum á Hringvegi frá Holtavörðuheiði að Blönduósi næstu daga. Vegfarendur geta búist við umferðarstýringu við framkvæmdasvæðið með 10-15 mínútna bið í senn.

Vegfarendur eru beðnir að aka varlega um nýlögð svæði, virða stöðvunarskyldu og hraðatakmarkanir á vinnusvæðum til að lágmarka umferðartafir og tjón vegna steinkasts.


Framkvæmdir á Reykjanesbraut og Krýsuvíkurvegi 

Unnið er við mislæg vegamót Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar í Hafnarfirði. Umferð fer á kafla um hjáleið á Reykjanesbraut sunnan Hafnarfjarðar. Leyfður umferðarhraði þar er 50 km/klst. Vegna sprenginga þarf að stöðva umferð á Reykjanesbraut í skamman tíma, allt að þrisvar sinnum á dag.

Einnig er verið að byggja nýtt hringtorg á  Krýsuvíkurvegi (42), en um er að ræða gatnatengingar að Dofrahellu og Ásvallabraut (Klukkutorg).  Í upphafi verður unnið meðfram Krýsuvíkurvegi (42) og síðar í sumar verður umferð færð yfir á hjáleið við hlið framkvæmdasvæðis. Gert er ráð fyrir að hringtorgið verði tekið í notkun 1. september 2017.

Þar að auki er unnið að gerð tveggja hringtorga á Reykjanesbraut (41), annars vegar við Aðalgötu og hins vegar við Þjóðbraut. Ökuhraði er lækkaður á framkvæmdasvæðinu og búast má við einhverjum töfum. Verkinu á að ljúka í september.

Vaðlaheiðarvegur

Vaðlaheiðarvegur 832 hefur verið opnaður að hluta, þ.e. 12 km kafli upp úr Eyjafirði en vegna framkvæmda við Vaðlaheiðargöng í Fnjóskadal er ekki hægt að láta umferð fara um vinnusvæðið við Skóga, því er veginum lokað við Ytra Nesgil. Öll umferð upp úr Fnjóskadal er því bönnuð.

Hálendiskort

Sjá hér